Færsluflokkur: Menning og listir

Fermingarveislur & undirbúningur

Nú fer að styttast í fermingar og flesir halda glæsilegar fermingaveislur, hvort sem það er heima eða í sal út í bæ. Við mömmurnar viljum að sjálfsögðu gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að gera veisluna sem glæsilegasta og eftirminnilega fyrir fermingarbarnið.Það er því að mörgu að huga svo að veislan gangi vel fyrir sig og verði sem glæsilegust. 

Matur og drykkur spilar hér stórt hlutverk sem og fermingarkerti, blómaskreytingar, borðskraut ofl. Oft er gott að fá hugmyndir frá öðurm og þessvegna læt ég fylgja með link sem vísar á margar frábærar hugmyndir að mat og skreytingum. Þar koma einnig fram uppskriftir af mörgum sniðugum réttum. Þar eru einnig tillögur að því hversu mikið magn af mat þarf fyrir þann fjölda sem þið ætlið að bjóða.

http://eldhussogur.com/2014/04/27/fermingarveisla/

Hér er svo linkur á glæsileg handgerð femingarkerti, sem hafa þann eiginleika að nafn farmingarbarnsins og annað skraut máist aldrei af.

Í boði eu yfir 18 áhugamál og 6 litir af borðum og skrauti.

https://www.kisinn.is/hraunskart

 


Frábærar fréttir og stórlækkað verð

Fermingarkerti_fjólublátt_dansFermingarkerti_Körfubolti_dökkbleikurFermingarkerti_grænn_SkíðiFermingarkerti_Snjóbretti_ljósbleikurFermingarkerti_dökkblátt_söngurFermingarkerti_Píanó_DökkbleikurVið erum himinlifandi því við náðum ótrúlega góðum samningum við einn af okkar stærri byrgjum í dag. Það er ykkur að þakka kæru viðskiptavinir þar sem þið hafið verið svo dugleg að versla við okkur :-)

Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur öll þar sem að við getum lækkað vöruverð á nokkrum vörutegundum í kjölfarið.

Við byrjum á fermingarkertum sem lækka nú úr 7.900kr. í 5.900 kr. og sendingarkostnaður innanlands er innifalinn í verði.

Í ár bjóðum vð upp á 19 mismunadi áhugamál á fermingarkerti og 6 mismundandi liti.

Til að skoða fermingarkertin okkar frekar þá endilega kíkið á heimsíðuna okkar: 

hraunskart.is


Eyrnalokkar úr hrauni og bláu agati

Eyrnalokkar úr hrauni og bláu sprungnu agati
Eyranlokkar úr Hrauni og bláu agati

Verð 3.900kr

Agate er dulkristallað kalsedón (chalcedony) sem er afbriði af kvarsi þar sem kristallarnir eru svo fínkristallaðir að það er oft talaðu um að þetta sé myndlaust form af kísil SiO2. Agat dregur nafn sitt frá ánni Agate á Sikiley þar sem að það fannst upphaflega.

 


Persónuleg Fermingarkerti

 Persónuleg fermingarkerti í ferminguna þína

20% kynningarafsláttur í mars.

Gerum persónuleg fermingarkerti eftir pöntunum með; nafni fermingarbarnsins dagsetningu og áhugamáli.

Kertin má láta loga alla fermingarveisluna án þess að nafn fermingarbarnsins eða annað skraut máist af.

Brenna má kertið alveg niður að borðanum og eftir stendur glæsileg kertalukt sem hægt er að setja sprittkerti ofaní og láta loga á hvenar sem ykkur langar til.

 25 cm kertin og loga í allt að 90 klst.
20cm kretin og logar í allt að 70klst

Öll 25cm fermingarkerti á aðeins 4500kr. í mars
Öll 20cm fermingarkerti á aðeins 3500kr. í mars

Tökum á móti pöntunum á eva@hraunskart.is og í síma 820-3106

Einnig getið þið fylgst með okkur á hraunskart.is   

 

25 cm Gítarkerti25 cm Píanókerti

 

 


Skartgripir úr hrauni, bláum skrautkúlum og semalíusteinum.


Hraun táknar mátt eldsins sem býr hið innra.

Blá hálsfesti í blogg

Myndun hrauns byrjar djúpt í jörðu þegar berg bráðnar í möttlinum og skorpu jarðarinnar við 700-1200 °C hita og brýst upp á yfirborðið í tignarlegum eldgosum. Bergkvikan storknar svo á yfirborðinu og myndar storkuberg (hraun) í hinum ýmsu myndum og breytir ásýnd lands til frambúðar.

Ysta lag hrauns storknar fljótt þegar það kemst upp á yfirborðið en undir því getur leynst glóð í mörg ár eða áratugi. Það má því með sanni segja að hraunið sé nátengt eldinum sem kraumar innra með því og búi yfir sérstökum kröftum frá yðrum jarðar.

Eldurinn gefur kristöllunum í hrauninu orku, ákveðni og ástríðu sem berst til þess sem ber hraun. Með sama hætti öðlast sá er ber hraun

hagkvæmni, aðhaldssemi og efnishyggju frá Móður jörð.

Bláir eyrnalokkar úr hrauni og skrautkúlum

Hraun beinir einnig orku inn á við og gefur jarðtengingu svo auðveldara sé að skilja hismið frá kjarnanum og einblína á það sem að er hagkvæmt og skiptir mestu máli.
Hraun býr líka yfir lækningarmætti frá móður jörð og er vermdandi fyrir þann sem ber það

Þjóðsögurnar segja að kringlóttir hraunsteinar tákni kvenleika og langir og oddmjóir karlmennsku.

Karlmönnum voru því jafnan gefnir langir og oddmjóair steinar fyrir bardaga til þess að halda yfirvegun.

Saman voru hraunsteinarnir notaðir til þess að auka kynkvöt og frjósemi.

Blátt armband í bækling light

Bláir eyrnalokkar í bækling light

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hálsfesti úr hrauni, bláum skrautkúlum og semalíusteinum á 50 cm langri silfurhúðaðri keðju með silfurhúðaðri festingu. 6900kr

Armband úr hrauni, bláum skrautkúlum og semalíusteinum á 20 cm silfurhúðaðri keðju með silfurhúðaðri festingu. 4900kr

Eyrnalokkar úr hrauni, bláum skrautkúlum og semalíusteinum læknastál í festingum. 3900kr

Allt efni er því nickelfrítt.

Frí heimsending.

Vinsamlegast athugið að máttur steina og kristalla kemur ekki í stað viðurkenndra lækningaraðferða heldur er einungis ætlað að auðga orku og andlega líðan þess er þá ber.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband